Ykkar eigin upplifun

Árshátíðir, jólakvöldverðir og starfsmannaferðir í einstöku umhverfi á Suðurlandi

Einkaupplifun fyrir fyrirtækið þitt – aðeins í boði á völdum dagsetningum í vetur.

Velja dagsetningu

Allt eingöngu fyrir ykkar hóp

13 herbergi, einkakokkur, veitingastaður, bar og útispa — allt eingöngu fyrir ykkar hóp, einn og hálfan tíma frá Reykjavík. Gestgjafinn sér um að allt gangi upp svo þið getið einbeitt ykkur að hópnum.

Enginn þarf að keyra heim eftir kvöldið. Það er stutt í rúmið og morgunverðurinn bíður ykkar daginn eftir.

  • Gisting fyrir allt að 30 manns í 13 herbergjum
  • Þriggja rétta kvöldverður frá kokkinum okkar
  • Morgunverður
  • Heitur pottur, gufubað og kaldur pottur (opið kl. 7–12 og 16–22)
  • Fordrykkur við komu
  • Sérstakur drykkjapakki í boði fyrir hópinn (áfengi er ekki innifalið í verðinu)
  • Einkakokkur og gestgjafi sem sjá um hópinn
Veitingasalurinn í Tindaseli

Veljið tilefnið

Árshátíð

Föstudags- eða laugardagskvöld. Fordrykkur, þriggja rétta kvöldverður og barinn opinn fram eftir kvöldi. Komið snemma og nýtið pottana og gufuna fyrir matinn.

950.000 kr.nóttin, föstudag og laugardag

Jólakvöldverður

Nóvember og fram í miðjan desember. Þriggja rétta jólamatseðill kokksins fyrir hópinn, gisting og morgunverður daginn eftir. Tilvalið fyrir minni fyrirtæki og deildir.

Frá 790.000 kr.nóttin sunnudag til fimmtudags, 950.000 kr. föstudag og laugardag

Starfsdagur og stefnumótun

Sunnudag til fimmtudags. Vinnið í ró og næði yfir daginn, borðið saman um kvöldið og byrjið næsta dag á morgunverði og potti.

790.000 kr.nóttin, sunnudag til fimmtudags

Signature

Signature Corporate Retreat

Allt sem fylgir einkaleigunni, auk buggyferðar fyrir hópinn um sveitina, sérstaks kvöldverðar frá kokkinum og aukinnar þjónustu frá komu til brottfarar.

Frá 1.190.000 kr.nóttin sunnudag til fimmtudags, 1.390.000 kr. föstudag og laugardag

Miðað við 30 manns gerir grunnverðið um 26.000–32.000 kr. á mann fyrir gistingu, kvöldverð, morgunverð og spa. Verð með virðisaukaskatti.

Afþreying og akstur

Buggyferð um sveitina

44.990 kr. á mann

Ofurjeppaferð eða Suðurströndin

Tilboð eftir stærð hóps

Rúta frá Reykjavík og til baka

Tilboð eftir stærð hóps

Drykkjapakki

Vín með matnum og drykkir á barnum, tilboð eftir stærð hóps

Bókið húsið eða fáið tilboð

Veljið laust kvöld og bókið. Við sendum reikning og bókunin er staðfest þegar hann er greiddur. Viljið þið spyrja fyrst? Veljið þá „Senda fyrirspurn" og við svörum innan sólarhrings.

Dagsetning * Í boði október, nóvember og fram í miðjan desember, og janúar til mars, með minnst 14 daga fyrirvara.

Greiðslu- og afbókunarskilmálar

  • 50% staðfestingargjald greiðist við bókun. Það er óendurkræft.
  • Eftirstöðvar greiðast 90 dögum fyrir komu. Sé bókað innan 90 daga fyrir komu greiðist allt verðið við bókun.
  • Innan 90 daga fyrir komu er bókunin óendurkræf að fullu.
  • Breyting á dagsetningu kemur til greina meira en 90 dögum fyrir komu, ef laust er.
  • Með reikningi er dagsetningin tekin frá í 3 sólarhringa. Bókunin er staðfest þegar reikningurinn er greiddur.

Að öðru leyti gilda almennir skilmálar Tindasels.

Eða hafið samband beint: info@tindasel.is · 490 6006

9.3 Wonderful · 177 reviews
Book with confidence
Check availability